Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps staðfesti á fundi sínum þann 10. desember 2020, fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2021 og áætlanir til næstu þriggja ára.
Rekstrarafkoma#rekstrarafkoma
Rekstrarafkoma A og B hluta er áætluð neikvæð um 75 milljónir króna á árinu 2021.
Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt lögum og reglum um reikningsskil sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða aðalsjóð, eignasjóð og þjónustumiðstöð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum.
Fjárfestingar#fjarfestingar
Fjárfestingar ársins 2021 eru áætlaðar 131 milljón króna.
Helstu fjárfestingar á árinu 2021 eru endurnýjun á þaki og þakkanti á íþróttahúsi, nýtt gras á fótboltavöll, hönnun á sundlaug, endurbætur á þaki í leikskóla og bætt hljóðvist hans auk lokafrágangs á lóð leikskólans. Einnig verður skólalóð Vopnafjarðarskóla hönnuð og betrumbætt. Í samgöngum verður farið í að bæta göngustíga og bæta við bekkjum. Í Sundabúð verður farið í múrviðgerðir og bætta útiaðstöðu. Einnig er reiknað með að leiguíbúðir verði endurbættar eftir því sem aðstæður leyfa. Farið verður í framkvæmdir við fráveituna í Skálanesvík.
Áætlunin gerir ráð fyrir að tekin verði ný lán vegna framkvæmda og fjárfestinga að fjárhæð 140 milljónir.
Skuldaviðmið samstæðu A og B hluta verður 73,7% í árslok 2021 og skuldahlutfall samstæðu A og B hluta verður 85,4% í árslok 2021.
Fjárhagsáætlun 2021#fjarhagsaaetlun-2021
Fjárhagsáætlun 2021 | pdf / 1 mb |