Dagur umhverf­isins 25. apríl 2022

Stóri plokk­dag­urinn verður haldinn á Degi umhverf­isins 25. apríl næst­kom­andi og í tilefni hans hvetur Vopna­fjarð­ar­hreppur íbúa til að taka þátt í að fegra umhverfi sitt.

Íbúar eru hvattir til að taka til í kringum hús sín og garða og einnig í fjörum og á opnum svæðum eftir því sem veður og aðstæður leyfa.

Það að plokka rusl gefur fólki tæki­færi á að sameina útiveru og hreyf­ingu sem og að sýna umhverfinu og samfé­laginu kærleik í verki.

  • Frábær hreyfing fyrir alla aldurs­hópa
  • Einstak­lings­miðað
  • Hver á sínum hraða
  • Hver ræður sínum tíma
  • Frábært fyrir umhverfið
  • Fegrar nærsam­fé­lagið
  • Öðrum góð fyrir­mynd

Verndum umhverfið!