Þessi áramótin verða engar brennur haldnar hjá Vopnafjarðarhreppi hvorki áramótabrenna né þrettándabrenna.
Tíu manna fjöldatakmarkanir gera það að verkum að ómögulegt er að halda viðburði sem kunna að laða að mannfjölda.
Að því sögðu er það mikilvægt að sveitarfélög gangi á undan með góðu fordæmi og fari eftir þeim sóttvarnareglum sem sett eru af yfirvöldum.
Flugeldasýning mun þó fara fram á gamlársdag klukkan 17, enda ekki þörf á að hópast saman til að njóta hennar.
Flugeldunum verður skotið upp frá hafnarsvæðinu og því ætti að vera hægt að njóta sýningarinnar víðsvegar um þorpið.
Fólk er beðið um að hópast ekki saman og virða fjarlægðarmörk og fjöldatakmarkanir.
FÖRUM VARLEGA
Gleðilegt nýtt ár 2021