Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2024 eru nú aðgengilegir á island.is.
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps annast álagningu og innheimtu á fasteignaskatti, lóðaleigu, vatnsgjaldi, fráveitugjaldi og sorpgjöldum. Fasteignagjöld ársins 2024, yfir 25.000 kr., greiðast með 10 jöfnum greiðslum á gjalddaga 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. september, 15. október og 15. nóvember og eindagi greiðslu er 15. næsta mánaðar á eftir gjalddaga.
Gjalddagi fasteignagjalda undir 25.000 kr. er 15. maí.