Hjá Vopnafjarðarhreppi starfar iðjuþjálfi sem þjónustar ýmsa hópa innan sveitarfélagsins. Starf iðjuþjálfa er víðfemt en felst m.a. í því að þjálfa, leiðbeina og endurhæfa.
Iðjuþjálfi sveitarfélagsins skiptir verkum sínum milli leikskóla, grunnskóla og öldrunarþjónustu.
Leik- og grunnskólar Vopnafjarðar#leik-og-grunnskolar-vopnafjardar
Hlutverk
Iðjuþjálfi framkvæmir faglegar greiningar og athuganir til þess að sýna fram á nauðsyn aukinna úrræða fyrir börn sem eiga við erfiðleika að etja í námi og samskiptum. Iðjuþjálfi kemur að hjálpartækjum og öðrum sérhæfðum búnaði fyrir þau börn sem þurfa á því að halda sem og að koma með tillögur að úrbótum í skólum og vera með ráðgjöf fyrir foreldra og starfsfólk.
Markmið
Iðjuþjálfi eflir nemendur í að nýta styrkleika sína til þess að ná auknum þroska og bættum lífsgæðum. Stuðlar að aukinni færni barna í námi og félagslegum samskiptum með því að efla almenna þátttöku þeirra við skólatengd verkefni. Sinnir ráðgjöf til starfsfólks og foreldra.
Starfsfyrirkomulag
Þjónusta iðjuþjálfa miðast við þarfir barnsins hverju sinni og er lögð áhersla á þá þætti og verkefni sem barnið þarf að inn af hendi í daglegu leik- og starfi. Lögð er rík áhersla á að vera í góðu samstarfi við barnið, foreldra og kennara. Þjónustan getur einnig beinst að vinnuumhverfi barnsins og annara aðila sem koma þar við.
Greiningar, þjálfun og athuganir eru unnar í samráði við foreldra og kennara. Niðurstöður úr þeim eru settar niður í matsskýrslur sem berast til skólaþjónusta og foreldra að lokinni vinnslu á þeim.
Iðjuþjálfi býr yfir sérþekkingu á daglegri iðju, mati á henni og úrræðum er varða skerta færni s.s. aðlögun á umhverfi/iðju. Skilgreinir færni barna við skólatengda iðju og vinnur að þjálfun og greiningum s.s. skynúrvinnslu, grófhreyfimati, fínhreyfimati, og með vettvangsathugunum í skólum. Vinnur í nánu samstarfi við kennara, foreldra og börn, situr fundi s.s. skilafundi og teymisfundi.
Skýrsla
Iðjuþjálfi skrifar um framgang mála eftir hvert verkefni og skilar skýrslum til skólaþjónustunnar. Lokaskýrslu er skilað vor hvert.
Öldrunarþjónusta#oldrunarthjonusta
Hlutverk
Að aðstoða hinn aldraða við að taka þátt í mikilvægum athöfnum í daglegu lífi og starfi. Auka færni í gegnum þjálfun og stuðning. Veita ráðleggingar til hins aldraða og útskýra hver hans réttindi eru. Finna félagslegt net til að stuðla að farsælli öldrun, sem og að auka leiðir til skemmtunar og ýta undir þátttöku. Vera talsmaður fyrir þann aldraða og tryggja að hann fái þá þjónstu sem hann á rétt á.
Markmið
Er að aðstoða aldraða að viðhalda og efla færni þeirra við daglega iðju, sem og að hvetja þá til þess að huga að því sem þeim þykir mikilvægt. Stuðla að sjálfstæði, auka sjálfstraust og aðlaga umhverfi. Veita ráðgjöf um ýmis málefni og aðstoða eins og kostur er til þess að hinn aldraði getu upplifað farsæla öldrun.
Starfsfyrirkomulag
Þjónusta iðjuþjálfa miðast við þarfir hins aldraða. Lögð er rík áhersla á að vera í góðu sambandi við hinn aldraða og ættingja. Þjónustan beinist að öllu því umhverfi sem hinn aldraði þarf að geta nýtt sér í daglegu starfi.
Greiningar, þjálfun og athuganir eru unnar í samráði við hinn aldraða og ættingja ef þess þarf. Niðurstöður úr þeim eru settar niður í matsskýrslur sem berast til skjólstæðing.
Iðjuþjálfi býr yfir sérþekkingu á daglegri iðju, mati á henni og úrræðum er varða skerta færni s.s. aðlögun á umhverfi/iðju. Skilgreinir færni aldraða við daglega iðju og vinnur að þjálfun og greiningum s.s. færnimati, mat á vitrænni getu, ökumat, mat á áttun og heimilisathugun sem dæmi.Vinnur í nánu samstarfi við skjólstæðing, ættingja og þá sem við kemur hinn aldraða situr fundi s.s. teymisfundi.
Skýrsla
Iðjuþjálfi skrifar um framgang mála og skilar skýrslum/niðurstöðum til viðkomandi eða ættingja þegar við á.