Frístunda­styrkur


Vopna­fjarð­ar­hreppur styrkir frístunda­iðkun barna og ungmenna á aldr­inum 3–18 ára með sérstöku fram­lagi.

Markmið fram­lagsins, sem er að upphæð 40.000 kr. á ári, er að hvetja börn og ungmenni til að taka þátt í frístund­a­starfi.

Reglur um frístundastyrk#reglur-um-fristundastyrk

Frístunda­styrk­urinn eykur jöfnuð í samfé­laginu og fjöl­breyti­leika í iðkun íþrótta-, lista- og tómstund­a­starf­semi.

Hægt er að nýta frístunda­styrk í:

  • Skipu­lagt frístund­astarf í Vopna­firði og þátt­töku í hvers­konar barna- og unglinga­starfi á vegum viður­kenndra félaga­sam­taka.
  • Nám í tónlist­ar­skóla sem er samfellt í 10 vikur
  • Árskort í þreksal íþrótta­húss Vopna­fjarðar fyrir ungmenni á aldr­inum 16-18 ára

Heimilt er að nýta styrkinn í frístunda­iðkun félaga og samtaka sem starfa utan Vopna­fjarðar ef sambærileg frístunda­iðkun er ekki í boði innan sveit­ar­fé­lagsins.

Skil­yrði fyrir greiðslu styrks

  • Að styrk­þegi eigi lögheimili í sveit­ar­fé­laginu og sé á aldr­inum 6-18 ára, miðað við fæðing­arár.
  • Að um skipu­lagt starf, kennslu eða þjálfun sé að ræða af viður­kenndum aðila sem lagt hefur fram upplýs­ingar um starf­semi sína til verk­efn­i­stjóra frístunda og æsku­lýðs­mála. Sem dæmi um slíkt má nefna: tónlist­arnám, íþróttaæf­ingar, leik­list, söngnám, leikj­a­nám­skeið, skóla­garðar, sund­nám­skeið o.m.fl.

Styrk­urinn getur aldrei numið hærri upphæð en þeirri sem kemur fram á fram­lögðum greiðslu­kvitt­unum, þó ekki hærri en 40.000 kr.

Útborgun styrkja

Úthlutun frístunda­styrkja fer fram í gegnum Abler við greiðslu, þar sem boðið er upp á að ráðstafa frístunda­styrk.