Vinir Vopn­firð­inga­sögu


Vinir Vopn­firð­inga­sögu er félags­skapur einstak­linga sem hafa sérstakan áhuga á Vopn­firð­inga­sögu.

Vopn­firð­inga­saga er ein af bókum Íslend­inga­sagn­anna, hluti af einum mikil­væg­asta menn­ing­ar­arfi okkar Íslend­inga, bókmennta­arf­inum.  Vopn­firð­inga­saga er talin rituð á fyrri hluta 13. aldar (1225-1250) og gerist hugs­an­lega á tíma­bilinu 960-990. Sögu­slóðir eru í Vopna­firði og í raun á mjög afmörkuðu svæði að mestu í aust­an­verðum Hofs­árdal, frá Böðv­arsdal við sjó og inn til dala og heiða.   Auðvelt er í dag að komast að og/eða sjá flesta staði sem getið er um í sögunni.  Vopn­firð­inga­saga er átaka­saga tveggja höfð­ingja­ætta vegna ágirndar, græðgi og valda­bar­áttu en líka vegna vináttu og fjöl­breyttrar manna- og mann­lífs­lýs­inga sem einkenna söguna.

Til að vekja söguna til lífs þarf hóp af viljugu fólki sem skiptist á hugmyndum. Lítill hópur áhuga­manna tók sig saman veturinn 2009 – 2010 og stofnaði félagið. Félagið hefur meðal annars teiknað upp kort af Vopna­firði þar sem sögu­staðir eru merktir inn auk þess sem boðið hefur verið upp á ferðir með leið­sögn.

Allir sem hafa áhuga á Vopn­firð­inga­sögu eru hvattir til að hafa samband við félagið.

Netfang félagsins er:#netfang-felagsins-er