Slysavarnardeildin Sjöfn var stofnuð árið 1967 og starfar innan Landsbjargar. Um land allt starfa slysavarnadeildir sem hafa það að meginmarkmiði að koma í veg fyrir slys og óhöpp í sinni heimabyggð ásamt því að styðja við bakið á björgunarsveitunum, aðstoða þær við fjáraflanir og veita þeim margháttaðan stuðning vegna útkalla og aðgerða. Hér á Vopnafirði hefur Slysavarnadeildin Sjöfn, um langt árabil, reynst Björgunarsveitinni Vopna öflugur bakhjarl auk þess sem deildin hefur stutt ýmsa aðila sérstaklega.