Hestamannafélagið Glófaxi hefur aðsetur sitt í hesthúsahverfinu í Vesturárdal, í landi Norður-Skálaness skammt frá þéttbýli Vopnafjarðar.
Hefur starfinu vaxið fiskur um hrygg með nýju áhugasömu fólki en hestagerði félagsins hefur dregið að sér fjölda fólks þegar boðið hefur verið uppá viðburði tengdu starfi þess. Úr hópi félagsmanna hafa menn sótt námskeið í hestamennsku og geta þannig fært þekkingu sína áfram til áhugasamra íbúa sveitarfélagsins. Í ljósi þessa hefur Glófaxi boðið uppá reiðnámskeið sl. sumur sem vel hafa verið sótt.