Vopnafjarðarhreppur lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þeirrar uppsagnar 20 starfsmanna sem tilkynnt hefur verið um hjá Brimi hf. á Vopnafirði. Um er að ræða erfiðar fréttir fyrir það starfsfólk sem þetta snertir, fjölskyldur þeirra og samfélagið allt.
Brim er einn af mikilvægustu atvinnurekendum sveitarfélagsins og er því er ljóst að breytingar af þessari stærðargráðu ná langt út fyrir starfsemina sjálfa. Hvert starf skiptir máli í litlu samfélagi og því fylgjumst við náið með framvindunni og þeim áhrifum sem þessar breytingar kunna að hafa.
Það er mikilvægt að þeir einstaklingar sem missa starf sitt viti að stuðningur og ráðgjöf stendur þeim til boða. Hægt er að nálgast upplýsingar frá Vinnumálastofnun inn á Ísland.is hér. Þá er einnig hægt að hafa samband við Vinnumálastofnun í síma 575 4800 til að fá frekari upplýsingar eða leiðbeiningar. Vinnumálastofnun sér um greiðslur atvinnuleysisbóta og fæðingarorlofs, auk þess að safna og miðla upplýsingum um íslenskan vinnumarkað og veita innflytjendum ráðgjöf og þjónustu.
Vopnafjarðarhreppur vill einnig benda á að félagsþjónusta Múlaþings stendur íbúum til boða fyrir ráðgjöf, upplýsingar og samtal eftir þörfum. Við hvetjum þá sem telja sig þurfa á stuðningi að halda að hafa samband gegnum netfangið felagsthjonusta@mulathing.is.
Sveitarfélagið mun áfram fylgjast með þróun mála og leggja sitt af mörkum á þessum krefjandi tíma. Fulltrúar sveitarfélagsins eiga fund með forsvarsmönnum Brims í dag þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref.
Hugur okkar er hjá því starfsfólki og þeim fjölskyldum sem nú standa frammi fyrir óvissu um atvinnu sína og afkomu.