Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) hefur birt drög að áætluðum eignamörkum um 1.160 jarða á Norðaustur- og Austurlandi. Með þessari vinnu hefur nú yfir 80% af flatarmáli Íslands verið afmarkað í landeignaskrá.
Eigendur þeirra jarða sem áætlunin nær til hafa fengið tilkynningu í pósthólf sitt á Ísland.is og hafa sex vikur frá 22. október 2026 til að koma á framfæri athugasemdum við áætluð eignamörk.
Landeigendur eru hvattir til að kynna sér upplýsingarnar og yfirfara áætluð eignamörk sinna jarða.
Nánari upplýsingar má finna á vef HMS: