Von á skemmti­ferða­skipum á Vopna­fjörð í sumar

Vopna­fjörður tekur á móti þremur skemmti­ferða­skipum í sumar og viljum við vekja athygli íbúa og þjón­ustu­aðila á komum þeirra.
Skipin eru vænt­anleg á eftir­far­andi dagsetn­ingum:

  • 3. júní
  • 28. júní
  • 8. júlí

Með komu skip­anna mun fjöldi gesta heim­sækja sveit­ar­fé­lagið og skapast þar með tæki­færi fyrir fyrir­tæki, félaga­samtök, hand­verks­fólk og aðra þjón­ustu­aðila til að kynna starf­semi sína og bjóða upp á vörur, þjón­ustu eða afþrey­ingu.

Við hvetjum alla sem hafa mögu­leika á að taka þátt að skoða hvort hægt sé að hafa opið á þessum dögum og bjóða upp á þjón­ustu sem gæti höfðað til gesta.

Líf og fjör verður í þorpinu á þessum dögum og búast má við aukinni umferð gesta á helstu viðkomu­stöðum.

Við hlökkum til að taka á móti skip­unum og sýna þeim það besta sem Vopna­fjörður hefur upp á að bjóða.