Vinavikan var sett í dag, sunnudaginn 11. október, í blíðviðri hér á Vopnafirði. Dagskráin hófst með vinamessu í Vopnafjarðarkirkju og að henni lokinni gengu þátttakendur í skrúðgöngu frá kirkjunni. Gangan endaði við Vopnafjarðarskóla þar sem þátttakendur mynduðu saman hjarta á skólalóðinni.
Kirkjna og börn og ungmenni í æskulýðsstarfinu standa að Vinavikunni, sem er ætlað að efla samkennd, vináttu og kærleik í samfélaginu. Fjölbreytt dagskrá verður í boði út vikuna og bæjarbúar, fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að taka þátt og skreyta heimili, vinnustaði og glugga í grænum litum.
Meðal viðburða eru vinaföndur, vinabíó, kærleiksmaraþon, sundlaugapartí og vinabingó. Fimmtudaginn 15. október er Græni dagurinn og eru allir hvattir til að klæðast einhverju grænu. Vikan er jafnframt hluti af fjáröflun æskulýðsfélagsins fyrir landsmót ÆSKÞ árið 2027.
Dagskrá vikunnar fylgir hér með.




Myndir: Fanney Björk Friðriksdóttir.