Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps og Valdimar O. Hermannsson sveitarstjóri hafa gert með sér samkomulag um starfslok Valdimars. Valdimar lét af störfum í byrjun febrúar eftir að hafa gegnt embætti sveitarstjóra frá 1. júní 2024.
Íris Edda Jónsdóttir, verkefnastjóri stjórnsýslu, mun sinna verkefnum sveitarstjóra í umboði sveitarstjórnar þar til ný sveitarstjórn tekur við að loknum sveitarstjórnarkosningum í vor.