Fyrir liggur að lögð verði fram tillaga á næsta fundi sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps (15/10) um það að sveitarfélagið vinni í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga og að almennar gjaldskrárhækkanir hjá sveitarfélaginu á árinu 2027 verði innan 2,5% marka. Lögð verður einnig áhersla á að kjarasamningar haldi og að ríkisvaldið og stofnanir þessi takmarki hækkanir með sama hætti.
Ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga:#alyktun-landsthings-sambands-islenskra-sveitarfelaga
Sveitarfélög sýna ábyrgð og gera kröfu til stjórnvalda um efndir
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga ályktar um að sveitarfélögin sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna. Þingið lýsir yfir vilja sínum til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027. Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi og ríkisvaldið og stofnanir í eigu þess taki þátt í sameiginlegu átaki og takmarki með sambærilegum hætti hækkanir á gjaldskrám og álögum sem hafa bein áhrif á heimilin. Með því leggja allir sitt af mörkum við að skapa sátt í samfélaginu.