Yfirkjörstjórn Vopnafjarðarhrepps tilkynnir hér með að einungis einn framboðslisti hefur borist til sveitarstjórnarkosninga í Vopnafjarðarhreppi þann 16. maí 2026, og er það nýr framboðslisti Sterkrar Stoðar.
Með vísan til 3. mgr. 46. gr. laga nr. 115/2021 telst framkominn framboðslisti Sterkrar Stoðar því sjálfkjörinn.
Þar af leiðandi verða engar kosningar til sveitarstjórnar í Vopnafjarðarhreppi þann 16. maí 2026.
Vopnafjarðarhreppur, 14. apríl 2026
Yfirkjörstjórn Vopnafjarðarhrepps