Til leigu: Skála­nes­gata 8l

Við vekjum athygli á íbúð við Skála­nes­götu 8l sem er laus til umsóknar hjá Leigu­fé­laginu Bríeti:

Til leigu 3ja herbergja, 78,1 m² íbúð í raðhúsi við Skála­nes­götu 8-I, Vopna­firði.

Eignin skiptist í forstofu með fata­skáp, 2 svefn­her­bergi með fata­skápum, baðher­bergi með sturtu og t. fyrir þvottavél, stofu, eldhús og geymslu. Ísskápur og uppþvottavél eru í eign, en þau tæki verða ekki endur­nýjuð eða gert við þegar þau bila.

Leigu­fjárhæð er tengd vísi­tölu neyslu­verðs. Hiti og rafmagn er ekki innifalið í leigu.

Leigu­samn­ingur er ótíma­bundinn.
Gælu­dýra­hald er óheimilt.

Leggja þarf fram trygg­ingu sem nemur 2ja mánaða leigu, sem getur verið í formi banka­ábyrgðar, trygg­ing­arfé lagt inn á leigu­sala, leigu­greiðslu- og viðskiln­að­ar­trygging sem leigj­andi kaupir hjá viður­kenndu trygg­inga­fé­lagi.

Ekki er hægt að skoða eign nema af myndum á netinu, nema fyrir þann aðila sem fær íbúðina úthlutaða í leigu, hann getur þó neitað henni eftir skoðun.

Frekari upplýs­ingar og myndir af íbúð­inni má sjá hér: Íbúð | Leigu­fé­lagið Bríet