„Þorpið mitt“ með augum barn­anna

Í vetur hafa börnin í leik­skól­anum Brekkubæ, unnið að skap­andi og fræð­andi verk­efni – „Þorpið mitt“. Mark­miðið var að efla skilning barn­anna á nærum­hverfi sínu og samfé­laginu sem þau tilheyra, ásamt því að styrkja grunn­færni í landa­fræði, tján­ingu og samvinnu.

Í gegnum verk­efnið lærðu börnin meðal annars að lesa einföld kort og nota þau til að rata. Þau fóru í ævin­týra­ferðir þar sem börnin æfðu sig í að þekkja stað­setn­ingar, skoða umhverfið og finna leiðir á milli staða. Einnig tóku þau myndir af áhuga­verðum stöðum, ræddu saman um bygg­ingar, götur, þjón­ustu og annað sem tilheyrir þorpinu þeirra.

Í fram­haldinu unnu börnin saman að því að búa til sitt eigið smáþorp úr pappa­massa og öðrum efnivið. Þar fengu þau að nýta ímynd­un­ar­aflið og samvinna var lykil­at­riði í sköp­un­ar­ferlinu.

Að lokum tók starfs­fólk viðtöl við börnin þar sem þau fengu að tjá sig um uppá­halds­staði sína í þorpinu og hvernig þau vilja að þorpið líti út þegar þau verða eldri. Svör barn­anna voru fjöl­breytt og skap­andi, og sýna vel hvernig þau skynja umhverfið sitt og hafa hugmyndir um fram­tíðina.

Sem hluta af verk­efninu byggðu börnin glæsi­legt líkan af þorpinu sínu – sem nú hefur fengið heið­urssess á skrif­stofu sveit­ar­fé­lagsins.

Hér má sjá myndir af verkefninu#her-ma-sja-myndir-af-verkefninu