Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB fer fram laugardaginn 29. ágúst 2026.
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni svara kjósendur einni spurningu með því að merkja X við já eða nei: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“
Kjörskrána má nálgast á skrifstofu sveitarfélagsins á opnunartíma.
Hver hefur kostningarétt í þjóðaratkvæðagreiðslum?#hver-hefur-kostningarett-i-thjodaratkvaedagreidslum
- Íslenskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri þegar kosning fer fram og á lögheimili hér á landi
- Íslenskur ríkisborgari, sem náð hefur 18 ára aldri og hefur ÁTT lögheimili hér á landi á kosningarrétt í sextán ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu.
- Eftir 16 ára búsetu erlendis skal sækja um til Þjóðskrár Íslands að vera tekinn á kjörskrá.
- Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi, og hafa ekki fengið íslenskt ríkisfang, eru ekki með kosningarétt í Alþingiskosningum, við forsetakjör og þjóðaratkvæðagreiðslum.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla#utankjorfundaratkvaedagreidsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps á opnunartíma.
Kjörstaður á kjördag er safnaðarheimilið við Vopnafjarðarkirkju og verður opinn frá 10-18.
Svör við mikilvægum spurningum varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna, aðildarviðræður og Evrópusambandið má finna inn á www.thjodaratkvaedi.is
Þú getur flett upp kennitölunni þinni hér til að sjá hvort þú sért á kjörskrá í þjóðaratkvæðagreiðslu og hvar þú átt að kjósa.