Sveit­ar­stjórn samþykkir mennta­stefnu Vopna­fjarð­ar­hrepps

Sveit­ar­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps samþykkti nýja mennta­stefnu sveit­ar­fé­lagsins á 55. fundi sínum þann 19. mars sl.

Mennta­stefnan tekur til leik­skóla, grunn­skóla og frístund­a­starfs og hefur það að mark­miði að tryggja öllum börnum og ungmennum jöfn tæki­færi til náms og þroska. Í henni er lögð áhersla á nám við hæfi, vellíðan og geðheil­brigði, fagmennsku í skóla­starfi og öflugt samstarf heimila og skóla.

Mennta­stefnan tekur einnig mið af Barna­sátt­mála Sameinuðu þjóð­anna og heims­mark­miðum um sjálf­bæra þróun. Þar er lögð áhersla á að öll börn fái nám við hæfi, að vellíðan og geðheil­brigði séu í öndvegi og að fagmennska og nýsköpun einkenni skólastarf. Þá er sérstök áhersla lögð á læsi, staf­ræna færni, list- og verk­greinar, ásamt því að efla tengsl við atvinnulíf og samfélag.

Næstu skref eru innleiðing stefn­unnar og gerð aðgerða­áætl­unar til næstu ára.

Menntastefna Vopnafjarðar#menntastefna-vopnafjardar