Vopnafjarðarhreppur auglýsir sumarstörf 2026 laus til umsóknar.
Um er að ræða störf sem henta öllum kynjum.
Ungmenni á framhaldsskólaaldri sitja fyrir og þeir sem ætla að vinna í allt sumar.
Jafnframt er auglýst eftir flokkstjóra bæjarvinnunar og skilyrði að viðkomandi geti unnið í allt sumar.
Leitað er eftir skipulögðum og úrræðagóðum einstaklingum og æskilegt er að flokksstjórar hafi bílpróf.
Vinna hefst mánudaginn 26. maí n.k.
Á meðal verkefna sem um ræðir:#a-medal-verkefna-sem-um-raedir
- Sláttur og hirðing opinna svæða
- Umsjón með vallarsvæði
- Vinna við leikjanámskeið
- Ýmis tilfallandi störf á vegum sveitarfélagsins
Vinnuskóli 2026#vinnuskoli-2026
Vinnuskóli Vopnafjarðarhrepps verður með eftirfarandi hætti sumarið 2026:
- Unglingar fæddir 2012 (8. bekkur) – Vinna hefst þriðjudaginn 8. júní og lýkur föstudaginn 3. júlí. Fjöldi vinnustunda 4 klst. á dag.
- Unglingar fæddir 2011 (9. bekkur) – Vinna hefst þriðjudaginn 8. júní og lýkur föstudaginn 17. júlí. Fjöldi vinnustunda 8 klst. á dag.
- Unglingar fæddir 2010 (10. bekkur) – Vinna hefst mánudaginn 8. júní. og lýkur föstudaginn 31. júlí. Fjöldi vinnustunda 8 klst. á dag.
Umsóknum skal skilað rafrænt á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps eigi síðar en 31. mars n.k. í gegnum netfangið skrifstofa@vfh.is.