Kæru sóknarbörn Hofsprestakalls.
Okkur er það sönn ánægja að tilkynna að ráðin hefur verið nýr sóknarprestur við prestakallið. Það er hún Sr.María Guðrún Ljungberg sem mun á haustmánuðum flytja ásamt fjölskyldu sinni, eiginmanni og þremur börnum, að Hofi. María Guðrún vígðist til prests á Íslandi árið 2013 en hefur síðastliðin ár þjónað í Svíþjóð.
Viljum við óska henni til hamingju með starfið og sóknarbörnum með nýjan prest og bjóða hana og fjölskyldu hennar velkomin til Vopnafjarðar.
Sóknarnefndir Hofsprestakalls.