Slysavarndardeildin Sjöfn færði Björgunarbátasjóð góða gjöf á dögunum, þegar þær komu færandi hendi með hjartastuðtæki til að hafa um borð í björgunarbátnum.
Sendum við Sjafnarkonum bestu þakkir fyrir.
Á meðfylgjandi mynd má sjá formann Sjafnar, Kristrúnu Ósk Pálsdóttur afhenda gjöfina Árna Magnússyni. stjórnarmanni og Magna Hjálmarssyni, skipstjóra hjá Björgunarbátasjóði.