Skap­andi Aust­ur­land

Aust­urbrú, menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráðu­neytið og Menn­ing­ar­stofa Fjarða­byggðar standa fyrir „Skap­andi Aust­ur­landi – ráðstefnu um stöðu, tæki­færi og framtíð lista og menn­ingar í lands­byggð­unum.“ Á dagskrá eru erindi, pall­borð og vinnu­stofur þar sem rætt verður um nýja menn­ing­ar­stefnu Aust­ur­lands, nýsköpun í skap­andi greinum, starfs­um­hverfi lista­fólks og uppbygg­ingu stoð­kerfa utan höfuð­borg­ar­innar. Full­trúar menn­ing­ar­mið­stöðva kringum landið, stjórn­valda og Rann­sókna­setri skap­andi greina leiða saman krafta sína í samtali um hlut­verk list­ar­innar í samfé­laginu og framtíð skap­andi atvinnu á Aust­ur­landi.

Kaffi og veit­ingar í boði en skráning þörf fyrir hádeg­ismat á Rand­ulfs­sjóhús í skrán­ing­ar­blaði. Skrán­ing­ar­hneppur hér fyrir neðan.

Dagskrá ráðstefn­unnar má finna á vef Aust­ur­brúar hér.

Við hvetjum öll áhugasöm að mæta á rástefnuna sem hafa áhuga á listum, menn­ingu eða einfald­lega góðum hugmyndum!