Skála­nes­gata 8G laus til umsóknar

Vopna­fjarð­ar­hreppur auglýsir húsnæði sveit­ar­fé­lagsins við Skála­nes­götu 8g til leigu.
Íbúðin getur verið laus 1. maí nk.

Um er að ræða vandaða, full­búna íbúð með einu svefn­her­bergi.

Íbúðin er leigð út með helstu tækjum í eldhúsi (ísskáp og uppþvottavél) og á baði (sturtu­klefi og vegg­hengt WC). Viðarp­arket og flísar eru á gólfum. Gólf­hiti er á baði og í anddyri.

Íbúðin við Skála­nes­götu 8g:

  • Tveggja herbergja íbúð (eitt svefn­her­bergi), samtals 55,9 fermetrar að stærð.
  • Verönd er fyrir utan stofu. Í stofu og eldhúsi er hátt til lofts (u.þ.b. 3,2 m).
  • Húsin eru timb­urhús með einhalla þaki, dökkgrá timb­urklæðning er á útveggjum. Gluggakarmar eru úr PVC.

Umsókn­ar­frestur er til og með 15. apríl 2026.

Umsóknum skal skila á skrif­stofu Vopna­fjarð­ar­hrepps, Hamra­hlíð 15, Vopna­firði, eða í tölvu­pósti á netfangið skrif­stofa@vfh.is.