Six Rivers Iceland gefur samfé­laginu nýja rútu

Það var ánægjuleg stund þegar Sir Jim Ratcliffe afhenti, fyrir hönd Six Rivers Iceland, samfé­laginu form­lega nýja 17 sæta Ford Transit-rútu. Rútan er hugsuð sem samfé­lagsrúta og mun nýtast íbúum, meðal annars fyrir starf­semi Ungmenna­fé­lagsins Einherja, ferðir eldri borgara og önnur samfé­lags­verk­efni.

Við afhend­inguna voru saman­komin full­trúar úr stjórn og ráðum Ungmenna­fé­lagsins Einherja, Eldri­borg­ara­fé­laginu og sveit­ar­stjórn.

Sveit­ar­fé­lagið og Ungmenna­fé­lagið Einherji færa Sir Jim Ratcliffe og Six Rivers Iceland inni­legar þakkir fyrir þessa góðu gjöf sem án efa mun nýtast samfé­laginu vel um ókomin ár.

Á mynd­unum má sjá Sir. Jim Radcliffe og Írisi Eddu Jóns­dóttur sveit­ar­stjóra Vopna­fjarð­ar­hrepps við rútuna.