Opið samtal vegna atvinnu­mála

Vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa í kjölfar uppsagna hjá Brimi vilja Vopna­fjarð­ar­hreppur, Aust­urbrú og Samband sveit­ar­fé­laga á Aust­ur­landi (SSA) bjóða íbúum upp á samtal.

Á morgun verða Bryndís Fiona Ford, fram­kvæmda­stjóri Aust­ur­brúar og Ragnar Sigurðsson, formaður SSA, á Vopna­firði og verða reiðu­búin til samtals ásamt sveit­ar­stjóra.

Viðtals­tíminn verður í Kaup­vangi frá kl. 12:00-14:00.

Jafn­framt er unnið að undir­bún­ingi íbúa­fundar um atvinnumál og verður dagsetning auglýst um leið og hún liggur fyrir.

Við hvetjum alla sem vilja ræða málin að nýta sér þetta tæki­færi.