Móttaka fram­boða til sveit­ar­stjórnar Vopna­fjarð­ar­hrepps

Sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram laug­ar­daginn 16. maí 2026.

Frestur til að skila fram­boðs­listum er til föstu­dagsins 10. apríl 2026 kl. 12:00 á hádegi.
Fram­boðs­listar skulu skip­aðir af 7-14 full­trúum og þeim skal fylgja listi 20-40 meðmæl­enda. Fram­bjóð­endur og meðmæl­endur þurfa að vera kjós­endur í Vopna­fjarð­ar­hreppi og hver meðmæl­andi getur einungis mælt með einu fram­boði.

Móttaka á fram­boðs­listum verður á skrif­stofu Vopna­fjarð­ar­hrepps, Hamra­hlíð 15, föstu­daginn 10. apríl 2026 frá kl. 11:00-12:00.

Nánari upplýs­ingar um fram­kvæmd og framboð má finna í kosn­inga­lögum nr. 112/2021 og á upplýs­inga­vefnum www.kosning.is.
Einnig veitir Bjarni Björnsson formaður yfir­kjör­stjórnar, upplýs­ingar og leið­bein­ingar vegna undir­bún­ings fram­boðs­lista og fram­kvæmd kosn­ing­anna í síma: 857-2233.

Yfir­kjör­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps,
Bjarni Björnsson, formaður
Júlí­anna Þórbjörg Ólafs­dóttir
Dagný Stein­dórs­dóttir