Meðmæla­söfnun fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar 2026

Yfir­kjör­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps hefur opnað fyrir rafræna meðmæl­enda­söfnun fyrir framboð til sveit­ar­stjórnar á vef Ísland.is Stofna meðmæla­söfnun vegna fram­boðs til sveit­ar­stjórnar | Ísland.is

Mælst er til þess að oddvitar fram­boða stofni söfnun en nafn þeirra og fæðing­ar­dagur birtist sem stofn­andi söfn­unar.

Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmæl­enda­kerfið áður en frum­ritum meðmæl­anna er skilað inn ásamt fram­boð­stil­kynn­ingu. Hér er sniðmát að söfnun meðmæla á pappír sem framboð geta nýtt sér.

Hægt er að mæla með fram­boðum hér Mæla með fram­boði í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum 2026 | Ísland.is

 

Yfir­kjör­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps