Leigu­hús­næði í boði / fram­lengdur umsókn­ar­frestur

Vopna­fjarð­ar­hreppur auglýsir íbúð sveit­ar­fé­lagsins við Skála­nes­götu 8f til leigu.

Um er að ræða vandaða, full­búna íbúð með tveimur svefn­her­bergjum og góðu aðgengi.

Tilvalin íbúð fyrir fólk sem vill minnka við sig. 

Íbúðin er leigð út með innrétt­ingum og helstu tækjum í eldhúsi (ísskáp, uppþvottavél, ofni og hellu­borði) og á baði (innrétting, sturtu­klefi og vegg­hengt WC). Viðarp­arket og flísar eru á gólfum. Gólf­hiti er á baði og í anddyri.

Íbúðin við Skála­nes­götu 8f:

  • Þriggja herbergja íbúð (tvö svefn­her­bergi), samtals 78,1 fermetri að stærð.
  • Verönd er fyrir utan stofu. Í stofu og eldhúsi er hátt til lofts (u.þ.b. 3,2 m).
  • Húsin eru timb­urhús með einhalla þaki, dökkgrá timb­urklæðning er á útveggjum. Gluggakarmar eru úr PVC.

Umsókn­ar­frestur hefur verið fram­lengdur og er nú til 12. maí 2022.

Umsóknum skal skila á skrif­stofu Vopna­fjarð­ar­hrepps, Hamra­hlíð 15, Vopna­firði eða í tölvu­pósti á netfangið skrif­stofa@vfh.is.

Athugið að eldri umsóknir óskast endur­nýj­aðar!