Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur birt drög að áætlun eignamarka og býður landeigendum að bóka fund með sérfræðingum stofnunarinnar til að kynna sér tillögur að eignamörkum jarða sinna og koma á framfæri athugasemdum.
Á fundunum gefst landeigendum tækifæri til að fá nánari upplýsingar um verkefnið, skoða tillögur að eignamörkum og koma á framfæri upplýsingum eða gögnum sem kunna að skipta máli við ákvörðun eignamarka.
Fundir með sérfræðingum HMS verða haldnir á eftirfarandi stöðum:
- Egilsstaðir 9.–10. nóvember: Austurbrú, Vonarlandi á Egilsstöðum.
- Reykjavík 16.–17. nóvember: Skrifstofa HMS, Borgartúni 21.
Einnig er hægt að óska eftir viðtali við sérfræðinga verkefnisins á skrifstofu HMS á Akureyri, Hafnarstræti 107, utan þessara dagsetninga. Mælt er með því að hafa samband fyrirfram.
Bókun funda
Boðið er upp á 15–30 mínútna fundi. Landeigendur eru hvattir til að kynna sér tillögurnar fyrir fundinn og hafa meðferðis þau gögn eða upplýsingar sem þeir telja að geti skipt máli.
Hægt er að bóka fund með því að:
- Senda tölvupóst á jardir@hms.is
- Hringja í síma 440 6400
Sveitarfélagið hvetur landeigendur til að kynna sér áætlun eignamarka og nýta sér þetta tækifæri til að koma á framfæri ábendingum og upplýsingum um eignamörk jarða sinna.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu HMS.