Íris Edda Jóns­dóttir ráðin sveit­ar­stjóri Vopna­fjarð­ar­hrepps

Sveit­ar­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps samþykkti á sveit­ar­stjórn­ar­fundi í dag 18. júní að ráða Írisi Eddu Jóns­dóttur í starf sveit­ar­stjóra Vopna­fjarð­ar­hrepps.

Íris hefur starfað sem verk­efna­stjóri stjórn­sýslu hjá Vopna­fjarð­ar­hreppi og gengt starfi sveit­ar­stjóra frá því í febrúar síðast­liðnum. Á þeim tíma hefur hún komið að fjöl­breyttum verk­efnum sveit­ar­fé­lagsins og stýrt daglegum rekstri þess.

„Ég þakka það traust sem mér er sýnt með þessari ráðn­ingu. Það er bæði ánægju­legt og krefj­andi verk­efni að leiða sveit­ar­fé­lagið áfram og ég hlakka til áfram­hald­andi samstarfs við sveit­ar­stjórn, starfs­fólk og íbúa. Það er mikill mannauður í sveit­ar­fé­laginu og ég sé mikil tæki­færi til þess að skapa sterka og sjálf­bæra framtíð á Vopna­firði.“

Íris mun gegna starfi sveit­ar­stjóra þar til hún fer í fæðing­ar­orlof síðar á árinu. Frá 1. sept­ember mun Björn Ingimarsson taka við sem stað­gengill sveit­ar­stjóra á meðan á fæðing­ar­or­lofi stendur.

Sveit­ar­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps óskar Írisi og Birni til hamingju og hlakkar til samstarfsins.