Vopnafjarðarhreppur auglýsir íbúð sveitarfélagsins við Skálanesgötu 8f til leigu frá 1. maí 2022.
Um er að ræða vandaða, fullbúna íbúð með tveimur svefnherbergjum.
Íbúðin er leigð út með innréttingum og helstu tækjum í eldhúsi (ísskáp, uppþvottavél, ofni og helluborði) og á baði (innrétting, sturtuklefi og vegghengt WC). Viðarparket og flísar eru á gólfum. Gólfhiti er á baði og í anddyri.
Íbúðin við Skálanesgötu 8f:
- Þriggja herbergja íbúð (tvö svefnherbergi), samtals 78,1 fermetri að stærð.
- Verönd er fyrir utan stofu. Í stofu og eldhúsi er hátt til lofts (u.þ.b. 3,2 m).
- Húsin eru timburhús með einhalla þaki, dökkgrá timburklæðning er á útveggjum. Gluggakarmar eru úr PVC.
Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2022.
Umsóknum skal skila á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps, Hamrahlíð 15, Vopnafirði eða í tölvupósti á netfangið skrifstofa@vfh.is.
Athugið að eldri umsóknir óskast endurnýjaðar!
Umsóknareyðublað - húsnæði | pdf / 143 kb |
Application for rental housing | pdf / 149 kb |