Vopnafjarðarhreppur auglýsir félagslegt húsnæði sveitarfélagsins við Þverholt 12 og Skálanesgötu 8b til leigu.
Þverholt 12#thverholt-12
Um er að ræða 3ja herbergja íbúð í raðhúsi.
Íbúðin er 85,4 fermetrar að stærð og er laus til afhendingar 15. apríl 2026.
Skálanesgata 8b#skalanesgata-8b
Skálanesgata 8b er 3ja herbergja íbúð í raðhúsi.
Íbúðin er 78,1 fermeter að stærð og er laus til afhendingar 1. apríl 2026.
Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar nk.
Umsóknum skal skila á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps, Hamrahlíð 15, Vopnafirði, eða í tölvupósti á netfangið skrifstofa@vfh.is.