Hunda- og katta­eig­endur athugið!

Miðviku­daginn 15. apríl 2026 skulu hunda- og katta­eig­endur koma með dýr sín í þjón­ustumið­stöð sveit­ar­fé­lagsins.

Mæta skal með hunda á milli kl. 10:00 og 11:00 og ketti á milli kl. 11:00 og 12:00.

Leyf­is­gjald verður innheimt með greiðslu­seðli, 15.600 kr. fyrir hunda og 9.500 kr. fyrir ketti. Innifalið í leyf­is­gjaldi er heil­brigð­is­skoðun dýra­læknis, orma­hreinsun og trygging, auk umsýslu­gjalds sveit­ar­fé­lagsins.

Vakin er athygli á því að vanræki eigendur dýra þessa skyldu sína er það brot á samþykktum um hunda- og katta­hald í Vopna­fjarð­ar­hreppi.

Eigendum óskráðra dýra er bent á að skrá dýr sín strax og er það í boði hjá dýra­lækni sem verður á staðnum.