Slysavarnardeildin Sjöfn kom færandi hendi í Sundabúð og gaf hjúkrunarheimilinu hjartastuðtæki að gjöf.
Áður hefur Slysavarnardeildin einnig gefið Life vac sogpumpu til að nota ef stendur í fólki.
Vopnafjarðarhreppur þakkar Sjöfn kærlega fyrir rausnarlega og mikilvæga gjöf.

Á meðfylgjandi mynd má sjá: Elísu Joensen Creed, Emmu Tryggvadóttur deildarstjóra Sundabúðar, Kristrúnu Ósk Pálsdóttur formann slysavarnardeildarinnar, Baldur Friðriksson yfirlækni, Jónu B. Júlíusdóttur og Hrönn Róbertsdóttur.