Í tilefni kjördæmaviku tók sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps á móti þingmönnum Norðausturkjördæmis ásamt framkvæmdastjóra Austurbrúar í dag. Á fundinum fóru fram góðar og gagnlegar umræður um helstu hagsmunamál samfélagsins og þau verkefni sem sveitarfélagið telur brýnt að stjórnvöld leggi áherslu á.
Samgöngur voru fyrirferðarmiklar í umræðunni. Rætt var um mikilvægi öruggra og greiðra samgangna, jarðganga sem bæta myndu tengingu Vopnafjarðar við Hérað og framkvæmdir við brú yfir Jökulsá á Fjöllum. Einnig var rætt um flugsamgöngur og áhyggjur af fyrirhugaðri fækkun flugdaga milli Vopnafjarðar og Akureyrar.
Heilbrigðisþjónusta var einnig til umræðu, meðal annars mikilvægi þess að tryggja læknisþjónustu í heimabyggð og nýta betur þau tækifæri sem felast í fjarlækningum.
Þá var komið inn á mikilvægi þess að sveitarfélögum sé tryggt nægilegt fjármagn til að sinna þeim lögbundnu verkefnum sem þeim eru falin. Þar voru meðal annars nefnd verkefni tengd farsæld barna og breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits, sem hafa áhrif á umfang verkefna og kostnað sveitarfélaga.
Atvinnumál og áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins var einnig til umræðu. Þá helst mikilvægi fjölbreytts atvinnulífs og opinberra starfa á landsbyggðinni. Einnig var farið yfir stöðu Vopnafjarðarhafnar, nauðsynlegar hafnarbætur og tækifæri tengd skemmtiferðaskipum og ferðaþjónustu.
Sveitarstjórn þakkar þingmönnum Norðausturkjördæmis og framkvæmdastjóra Austurbrúar kærlega fyrir komuna og gott samtal.

Mynd: Njáll Trausti Friðbertsson
