Gjöf frá Vopna­fjarð­ar­skóla til sveit­ar­fé­lagsins

Nýverið færði Vopna­fjarð­ar­skóli sveit­ar­fé­laginu fallega gjöf þegar afhent var púlt sem smíðað hefur verið í skól­anum. Smíða­kenn­arinn Baldur Hall­grímsson á heið­urinn af verkinu, en hann hannaði og smíðaði púltið sem prýtt er byggða­merki Vopna­fjarðar.

Púltið er vandað hand­verk og mun án efa nýtast vel við ýmis tilefni.

Við viljum færa Baldri kærar þakkir fyrir verkið, sem og Vopna­fjarð­ar­skóla fyrir þessa gjöf til sveit­ar­fé­lagsins.