Fyrstu mánuðir nýs kjörtímabils hafa einkennst af fjölbreyttum verkefnum og ýmsum breytingum hjá sveitarfélaginu. Samhliða daglegum rekstri hefur verið unnið að áframhaldandi uppbyggingu, framkvæmdum og atvinnumálum auk þess sem ýmis verkefni hafa verið sett af stað sem munu móta starfið á næstu misserum. Hér verður stiklað á helstu verkefnum og málum sveitarfélagsins síðustu mánaða.
Ný sveitarstjórn#ny-sveitarstjorn
Ný sveitarstjórn tók formlega við í byrjun júní. Frá þeim tíma hefur töluverð vinna farið í að móta fyrirkomulag stjórnsýslunnar til næstu ára og leggja grunn að starfsemi sveitarfélagsins á nýju kjörtímabili. Meðal annars hefur verið unnið að breytingum á stjórnsýslu og nefndaskipan, yfirferð og mótun starfslýsinga, ráðningarmálum og öðrum verkefnum sem tengjast skipulagi og starfsemi sveitarfélagsins.
Sem liður í þessum breytingum hafa tvö störf innan stjórnsýslunnar, fjármálastjóri og starf verkefnastjóra stjórnsýslu, verið sameinuð í eitt starf skrifstofustjóra sem hefur verið auglýst til umsóknar.
Atvinnumál#atvinnumal
Sveitarstjórnarfulltrúar áttu fund með fulltrúum Brims þann 12. ágúst sl. í Miklagarði þar sem atvinnumál og framtíðartækifæri á Vopnafirði voru til umræðu. Fundurinn var liður í þeirri vinnu sem framundan er við að horfa til framtíðar í atvinnumálum sveitarfélagsins, greina þau tækifæri sem kunna að vera til staðar og skoða hvernig hægt sé að styðja við frekari atvinnuuppbyggingu og fjölbreyttara atvinnulíf á svæðinu.
Fyrirhugað er að ráða verkefnastjóra sem mun meðal annars vinna að kortlagningu atvinnutækifæra á Vopnafirði og halda utan um áframhaldandi vinnu á þessu sviði. Þá stendur til að koma á fót spretthópi þar sem unnið verður markvisst að hugmyndum og tækifærum sem geta styrkt atvinnulíf og samfélagið til framtíðar.
Eitt þeirra málefna sem sveitarstjórn vill leggja áherslu á í þessari vinnu er að skoða með hvaða hætti megi efla ferðaþjónustu á Vopnafirði og nýta betur þau tækifæri sem kunna að vera til staðar á því sviði. Ferðaþjónusta verður því meðal þeirra þátta sem horft verður til samhliða öðrum tækifærum til atvinnuuppbyggingar í sveitarfélaginu.
Sveitarstjórn hefur tilkynnt að stefnt sé að íbúafundi þar sem mikilvægt er að íbúar og atvinnulíf á svæðinu komi einnig að þessari vinnu. Stefnt er að íbúafundi síðar í haust þar sem farið verður yfir stöðu mála og íbúum gefinn kostur á að taka þátt í samtalinu, koma hugmyndum á framfæri og hafa áhrif á næstu skref.

Nýr skólastjóri og bætt skólalóð#nyr-skolastjori-og-baett-skolalod
María Guðmundsdóttir hefur verið ráðin sem skólastjóri Vopnafjarðarskóla en María hefur mikla reynslu úr skólaumhverfinu og var áður skólastjóri á Bakkafirði. Hún hefur komið að ýmsum verkefnum um skólaþróun og alþjóðaverkefnum innan grunnskóla, ásamt því að hafa sinnt málum farsældar.
Við bjóðum Maríu hjartanlega velkomna í nýtt starf og hlökkum til samstarfsins.
Þá var fyrsti áfangi framkvæmda við skólalóðina unninn í sumar. Í þessum áfanga var sett upp róla og tvö trampólín og með því bættist við fjölbreyttari leikaðstaða á skólavellinum. Mælifell ehf. sáu um framkvæmdina ásamt starfsmönnum þjónustumiðstöðvarinnar.
Framkvæmdirnar eru liður í áframhaldandi uppbyggingu og endurbótum á skólalóðinni með það að markmiði að skapa fjölbreytt og aðlaðandi útisvæði fyrir nemendur.

María Guðmundsdóttir, nýr skólastjóri við Vopnafjarðarskóla.


Nýtingarmiðstöð á Vopnafirði hlýtur 3 milljóna króna Lóu-styrk#nytingarmidstod-a-vopnafirdi-hlytur-3-milljona-krona-lou-styrk
Nýtingarmiðstöð á Vopnafirði hlaut þriggja milljóna króna styrk úr Lóu – nýsköpunarstyrkjum fyrir árið 2026. Styrkurinn er mikilvæg viðurkenning fyrir verkefnið og mun nýtast við áframhaldandi þróun þess.
Verkefnið var sett af stað til að skapa öflugan vettvang fyrir nýsköpun og þróun í matvælaframleiðslu á Vopnafirði. Hugmyndin er að byggja upp umhverfi þar sem hægt verður að þróa hugmyndir að vörum, auka verðmæti hráefna, fullnýtingu afurða og styrkja atvinnulíf og nýsköpun á svæðinu.
Verkefnið er umfangsmikið og hefur á undanförnum misserum verið unnið að því að móta hvernig best sé að byggja það upp. Sú vinna hefur meðal annars leitt til þess að ákveðið hefur verið að leggja enn meiri áherslu á þekkingu, rannsóknir og samstarf við háskóla- og rannsóknarumhverfið samhliða tengingu við atvinnulífið.
Á þessu stigi er því lögð áhersla á að forgangsraða fyrstu skrefum verkefnisins vel og tryggja því trausta umgjörð áður en næsti áfangi hefst. Sú vinna er í fullum gangi og verður nánar sagt frá þróun verkefnisins eftir því sem einstök skref skýrast.
Við höfum lagt áherslu á að þróa verkefnið í skrefum og hugmyndin hefur tekið á sig skýrari mynd eftir því sem vinnunni hefur miðað áfram. Nú sjáum við enn skýrari tækifæri í því að tengja saman atvinnulíf, rannsóknir og háskólasamfélagið. Styrkurinn gefur okkur því mikilvægan stuðning til að halda þeirri vinnu áfram.
Alls hlutu 21 verkefni Lóu-nýsköpunarstyrk árið 2026 og nemur heildarúthlutunin 100 milljónum króna. Styrkirnir eru ætlaðir verkefnum á landsbyggðinni sem stuðla að nýsköpun, verðmætasköpun og samfélagslegri þróun.
Bæjarhátíðin Vopnaskak#baejarhatidin-vopnaskak
Bæjarhátíðin Vopnaskak fór fram dagana 9.–12. júlí sl. og tókst hátíðin afar vel. Mikil stemning var í firðinum þessa daga og fjöldi gesta sem lagði leið sína á svæðið til að taka þátt í hátíðarhöldunum.
Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá þar sem fólk á öllum aldri gat fundið eitthvað við sitt hæfi. Vopnaskak er mikilvægur viðburður í samfélaginu og skapar gott tækifæri fyrir heimafólk, brottflutta Vopnfirðinga og gesti til að koma saman og njóta þess sem Vopnafjörður hefur upp á að bjóða.
Margir komu að undirbúningi og framkvæmd Vopnaskaks og er ljóst að hátíð sem þessi verður ekki að veruleika án mikillar vinnu og góðrar samstöðu. Sveitarfélagið færir öllum þeim sem komu að hátíðinni, með einum eða öðrum hætti, bestu þakkir fyrir þeirra framlag. Sérstakar þakkir fá þau sem tóku að sér skipulagningu, fyrirtæki og félagasamtök sem lögðu sitt af mörkum, sjálfboðaliðar, starfsmenn þjónustumiðstöðvar og aðrir sem lögðu hönd á plóg. Ekki síður ber að þakka íbúum og gestum fyrir góða þátttöku og fyrir að eiga sinn þátt í að skapa þá góðu stemningu sem einkenndi Vopnaskak í ár.


Þann 1. september nk. fer sveitarstjóri í fæðingarorlof og mun Björn Ingimarsson taka við starfi sveitarstjóra sem staðgengill næstu níu mánuði hið minnsta.
Fyrstu mánuðir nýrra sveitarstjórnarfulltrúa fara eðli máls samkvæmt að hluta til í að móta áherslur, stilla saman strengi og leggja grunn að því starfi sem framundan er.
Nú þegar haustar tekur við annasamur tími. Vinna við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fer á fullt, áfram verður unnið að atvinnumálum og þeim tækifærum sem þar kunna að felast, auk verkefna á sviði úrgangsmála og framkvæmda svo eitthvað megi nefna.
Það er því óhætt að segja að verkefnin framundan séu bæði fjölbreytt og umfangsmikil og áfram verður unnið að því að skapa traustan grunn fyrir áframhaldandi þróun og uppbyggingu öflugs samfélags á Vopnafirði.