Förum varlega með eld

Almanna­varna­nefnd á Aust­ur­landi vekur athygli á að lítil úrkoma hefur verið síðustu vikur og gróður víða þurr af þeim sökum. Hætta á gróð­ureldum hefur því aukist síðustu daga. Íbúar og gestir  fjórð­ungsins, í sumar­húsa­hverfum til að mynda þar sem gróður og gróð­ur­þekja er mikil, eru því hvattir til að fara varlega með eld. Í því felst m.a. að sjá til þess að ekki stafi hætta af útigrillum, ekki síst einnota, að glóð úr vindlum eða vind­lingum berist ekki í gróður og svo fram­vegis.

 

Á vef Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar er að finna ágæta kynn­ingu á því hvað hafa ber í huga til að koma í veg fyrir gróð­urelda og fyrstu viðbrögð við þeim. Gróð­ureldar

 

Förum varlega með eld, alltaf.