Alzheimersamtökin hafa unnið að aukinni vitundarvakningu um Alzheimer um langt árabil. Liður í því er átakið Munum leiðina sem felst í því að koma upp fjólubláum bekkjum í sveitarfélögum víða um land en fjólublár er alþjóðlegur litur Alzheimer sjúkdómsins og annarra heilabilunarsjúkdóma.
Víða um land má sjá fjólubláa bekki en tilgangur þeirra er að vekja athygli á og stuðla að umræðu um heilabilun sem er mikilvægur þáttur í að minnka fordóma í samfélaginu.
Á www.alzheimer.is má finna upplýsingar og fræðslu um heilabilunarsjúkdóma.
Þjónustumiðstöð Vopnafjarðarhrepps hefur málað bekkinn og komið honum fyrir við Kolbeinsgötu.
