Brúin yfir Jökulsá á Fjöll­­um – fyrir­­hug­aðar lokan­­ir vegna viðhalds

Áætlað er að hefja viðhalds­vinnu á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum við Gríms­staði (vegnúmer 1) þann 26. maí næst­kom­andi og að hún standi yfir til 16. júní. Unnið verður alla virka daga frá klukkan 8:00 á morgnana til klukkan 19:00 á kvöldin. Brúin verður lokuð yfir daginn vegna viðhalds­vinn­unnar en það verður opnað fyrir umferð fjórum sinnum á dag, þrisvar sinnum í hálf­tíma í senn og einu sinni í klukku­tíma. Brúin verður opin eftir að vinnu líkur að kvöldi og þar til vinna hefst á ný að morgni. Hún verður einnig opin um helgar.

Til stendur að mála brúna á þessu tíma­bili, það er að segja ef veður leyfir. Sá fyrir­vari er gerður að ef ekki viðrar til máln­ing­ar­vinnu mun verk­efnið frestast lengra inn í sumarið.

Unnið verður alla virka daga frá klukkan 8:00 á morgnana til klukkan 19:00 á kvöldin.
Opið verður fyrir umferð á eftir­far­andi tímum dags:

09:45 – 10:15

12:00 – 13:00

14:45 – 15:15

16:45 – 17:15

Lokanir ættu ekki að hafa mikil áhrif á neyð­ar­flutn­inga þar sem unnt verður að opna fyrir umferð um brúna með skömmu fyrir­vara ef aðstæður krefjast.

Upplýs­inga­skilti með leið­bein­ingum og merk­ingum verða sett upp við brúna.

Vega­gerðin hvetur vegfar­enda til að sýna þolin­mæði, fylgja merk­ingum og virða fyrir­mælum á svæðinu.

Fréttin er af vef Vega­gerð­ar­innar. Sjá hér.