Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum í desember sl. að gera breytingar á gjaldskrá sundlaugar en undanfarin ár hafa eldri borgarar og öryrkjar ásamt börnum upp að 16 ára aldri með skráð lögheimili í Vopnafjarðarhreppi ekki greitt fyrir aðgang að sundlaug sveitarfélagsins. Ný gjaldskrá sundlauga tók gildi í ársbyrjun.
Við ákvörðun sveitarstjórnar var litið til úrskurðar Innviðaráðuneytisins sem komst að þeirri niðurstöðu í úrskurði sínum á liðnu ári að óheimilt væri samkvæmt lögum að útfæra gjaldskrár sundstaða þannig að í þeim fælist mismunun á grundvelli lögheimilisskráningar.
Vopnafjarðarhreppur býður öllum börnum til 16 ára aldurs og örorku- og ellilífeyrisþegum í sund árið 2024 óháð búsetu.