Bænda­dagar 2026

Bænda­dagar Vopna­fjarð­ar­hrepps í Hofsá haustið 2026 eru lausir til umsóknar fyrir íbúa Vopna­fjarðar.

Um er að ræða fjóra dagparta á tíma­bilinu 15. til 18. sept­ember 2026.

Umsóknir skulu inni­halda nafn, kenni­tölu, síma­númer og netfang umsækj­anda.

Umsóknum skal skilað á skrif­stofu Vopna­fjarð­ar­hrepps eða á netfangið skrif­stofa@vfh.is, merkt „Bænda­dagar 2026“.

Skil­yrði fyrir þátt­töku er að lögheimili sé skráð í Vopna­fjarð­ar­hreppi.
Ætlast er til að umsækj­andi veiði sjálfur.

Umsókn­ar­frestur er til og með sunnu­deg­inum 13. sept­ember 2026.

Allar umsóknir verða settar í pott sem dregið verður úr og í fram­haldi af því verður haft samband við veiði­leyf­is­hafa.