Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Austurlands. Uppbyggingarsjóður Austurlands er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2021. Lokað verður fyrir umsóknir kl. 23 þann 15. október.
Hlutverk Uppbyggingarsjóðs er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni sem falla að Sóknaráætlun Austurlands. Auk þess veitir sjóðurinn stofn- og rekstrarstyrki til menningarverkefna. Uppbyggingarsjóður Austurlands er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2021.
Vinnustofa þar sem umsækjendur geta fengið kynningu og leiðsögn varðandi umsóknarferlið verður á Vopnafirði 8. október milli kl. 13:30 og 15:30 í Kaupvangi.
Vinnustofur hefjast á kynningu á Uppbyggingarsjóði, úthlutunarreglum og vinnulagi við umsóknir. Eftir það veitir ráðgjafi viðtöl vegna einstakra umsókna og verkefnahugmynda.
Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig á vinnustofurnar hér.