Ársreikn­ingur Vopna­fjarð­ar­hrepps 2025

Seinni umræða sveit­ar­stjórnar um ársreikning Vopna­fjarð­ar­hrepps 2025 fór fram á sveit­ar­stjórn­ar­fundi í Mikla­garði föst­daginn 08. maí 2026.

Í fund­ar­gerð sveit­ar­stjórnar frá 08. maí 2026 segir meðal annars:


Rekstr­ar­tekjur sveit­ar­fé­lagsins á árinu námu 1.510 millj. kr., samkvæmt ársreikn­ingi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstr­ar­tekjur A hluta 1.222 millj. kr.  
 

Rekstr­arnið­ur­staða A og B hluta var neikvæð um 64 millj. kr. rekstr­arnið­ur­staða A hluta var neikvæð um 138 millj. kr  samkvæmt rekstr­ar­reikn­ingi.   Eigið fé sveit­ar­fé­lagsins í árslok nam 866 millj. kr. samkvæmt efna­hags­reikn­ingi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta var neikvætt um 244 millj. kr.   

Loðnu­brestur á árinu hafði veruleg áhrif á tekjur og útsvar sveit­ar­fé­lagsins. Jafn­framt leiddu aftur­virkir kjara­samn­ingar vegna grunn- og leik­skóla­kennara til aukins kostn­aðar. Af þeim sökum var gripið til 60  lántöku til að mæta óvæntum sveiflum í rekstri sveit­ar­fé­lagsins. 

Ársreikningur 2025#arsreikningur-2025