Seinni umræða sveitarstjórnar um ársreikning Vopnafjarðarhrepps 2024 fór fram á sveitarstjórnarfundi í Miklagarði fimmtudaginn 23. maí 2025.
Í fundargerð sveitarstjórnar frá 23. maí 2025 segir meðal annars:
Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 1.471 millj. kr., samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 1.124 millj. kr. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var neikvæð um 78 millj. kr. rekstrarniðurstaða A hluta var neikvæð um 145 millj. kr samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nem 915 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta var neikvætt um 122 millj. kr.
Eins og fram hefur komið í ársreikningum undanfarinna ára þá hefur sveitarfélagið þurft að greiða umtalsvert með rekstri hjúkrunarheimilisins, en sá rekstur fluttist yfir til HSA, um mitt ár 2024. Þá hafði loðnubrestur á árinu töluverð áhrif á tekjur og útsvar sveitarfélagsins og til að mæta því ásamt fjárfestingum og framkvæmdum ársins þá var tekið 200 millj. kr., lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga á síðari hluta ársins. Þrátt fyrir það er skuldastaða sveitarfélagssins góð og vel innan allra viðmiðunarmarka sem um það gilda.
Ársreikningur 2024#arsreikningur-2024
Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps 2024 | pdf / 427 kb |