Ársreikn­ingur Vopna­fjarð­ar­hrepps 2022

Seinni umræða sveit­ar­stjórnar um ársreikning Vopna­fjarð­ar­hrepps 2022 fór fram á sveit­ar­stjórn­ar­fundi í Mikla­garði miðviku­daginn 17. maí 2023.

Í fund­ar­gerð sveit­ar­stjórnar frá 17. maí 2023 segir meðal annars:

Rekstr­ar­tekjur sveit­ar­fé­lagsins á árinu námu 1.432 millj. kr. samkvæmt ársreikn­ingi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstr­ar­tekjur A hluta 968 millj. kr. Rekstr­arnið­ur­staða A og B hluta var jákvæð um 1,6 millj. kr. og rekstr­arnið­ur­staða A hluta var neikvæð um 102 millj. kr. samkvæmt rekstr­ar­reikn­ingi. Eigið fé sveit­ar­fé­lagins í árslok 2022 nam 899 millj. kr. samkvæmt efna­hags­reikn­ingi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta um 57 millj. kr.

Eins og komið hefur fram í ársreikn­ingum undan­far­inna ára þá duga framlög ríkisins ekki fyrir rekstri hjúkr­un­ar­heim­il­isins og hefur sveit­ar­fé­lagið þurft að greiða tölu­vert með rekstr­inum.

Heild­ar­skuldir og skuld­bind­ingar námu 1.047 millj. kr. í árslok 2022 fyrir A og B hluta.

Engin lántaka var hjá sveit­ar­fé­laginu á árinu 2022 og er skuldastaða sveit­ar­fé­lagsins góð og vel innan viðmið­un­ar­marka.

Ársreikn­ing­urinn verður kynntur fyrir íbúum þriðju­daginn 13.júní kl. 16:00 – 17:00 í félags­heim­ilinu Mikla­garði.