Appel­sínugul viðvörun

Vakin er athygli á óvenju­legu veðri (miðað við árstíma) sem gengur yfir landið á morgun  og þriðjudag.  Gefnar hafa verið út gular og appel­sínu­gular viðvar­anir og má fylgjast með þróun þeirra hér: https://vedur.is/vidvar­anir.

Gert er ráð fyrir tals­verðri sjókomu hér aust­an­lands á morgun og á þriðjudag, aðal­lega til fjalla. Vanbúnir bílar til „vetr­araksturs“ gætu þá lent í vand­ræðum á fjall­vegum. Þá er gert ráð fyrir tals­verðri eða mikilli rign­ingu í kjölfar þessa sem stendur fram á miðvikudag.

Búast má við auknu afrennsli og vatna­vöxtum á þriðjudag og miðvikudag sem eykur hættu á flóðum og skriðu­föllum. Fólk hvatt til þess að sýna aðgát.

Sem fyrr fylgist Veður­stofa vel með mælum í hlíðum ofan Seyð­is­fjarðar vegna vatna­vaxta og vekur athygli þyki ástæða til.

Lögregla mun setja á fésbók­ar­síðu sína stutta frétta­til­kynn­ingu vegna þessa þar sem íbúar og ekki síst ökumenn eru hvattir til aðgæslu. Bændur einnig beðnir um að huga að búfénaði.