Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps mótmælir harðlega fyrirhugaðri fækkun flugferða til og frá Vopnafirði, úr fimm ferðum á viku í þrjár. Um er að ræða verulega skerðingu á grunnþjónustu við íbúa, sem sveitarstjórn telur óásættanlega.
Flugsamgöngur við Vopnafjörð eru ekki munaður heldur mikilvægur hluti af grunnsamgöngum samfélagsins. Flugið er ríkisstyrkt almenningssamgönguþjónusta og hefur mikið vægi fyrir íbúa, atvinnulíf og aðgengi að þjónustu. Fyrir samfélag sem býr við langar vegalengdir skiptir reglulegt flug verulegu máli.
Sveitarstjórn gerir alvarlegar athugasemdir við að fækkun ferða sé meðal annars rökstudd með nýtingu flugsins. Slíkan mælikvarða verður að setja í rétt samhengi. Hlutfallsleg sætanýting ein og sér segir ekki alla söguna, enda ræðst hún meðal annars af stærð þeirrar flugvélar sem notuð er á leiðinni. Mikilvægt er að horfa einnig til samfélagslega hlutverks sem ríkisstyrktar almenningssamgöngur eiga að gegna.
Þá er vísað til niðurskurðar og fjárhagslegra sjónarmiða. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hafnar því að nauðsynleg grunnþjónusta í dreifðum byggðum sé ítrekað látin bera kostnaðinn þegar hagræða þarf í opinberum rekstri. Það getur ekki talist ásættanleg byggðastefna að draga úr þjónustu við samfélög þar sem fáir eða engir aðrir raunhæfir samgöngukostir standa til boða.
Fækkun úr fimm ferðum í þrjár á viku er 40% skerðing á þjónustunni. Slík breyting hefur áhrif langt út fyrir sjálfar flugferðirnar. Hún dregur úr sveigjanleika íbúa til að sækja þjónustu og sinna erindum, hefur áhrif á atvinnulíf og gerir Vopnafjörð að erfiðari stað til búsetu og atvinnurekstrar. Þá telur sveitarstjórn mikilvægt að ákvarðanir um ríkisstyrktar almenningssamgöngur taki mið af öðru og meira en kostnaði á hvern farþega. Tilgangur opinbers stuðnings við slíkar leiðir er einmitt að tryggja samgöngur þar sem markaðurinn einn og sér getur ekki tryggt viðunandi þjónustu.
Íbúar landsbyggðarinnar eiga rétt á því að ákvarðanir um grunnsamgöngur þeirra séu teknar með heildarhagsmuni samfélaganna að leiðarljósi. Jafnræði til búsetu verður ekki tryggt með því að skerða þá þjónustu sem gerir fólki kleift að búa og starfa fjarri stærstu þéttbýliskjörnum. Ólíkt því sem tíðkast hefur áður var ekkert samráð haft við sveitarfélagið um fyrirhugaða breytingu.
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps skorar því á Vegagerðina og stjórnvöld að endurskoða fyrirhugaða fækkun flugferða og tryggja áfram fimm flugferðir á viku til og frá Vopnafirði. Sveitarstjórn óskar eftir raunverulegu samráði við sveitarfélagið áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar um þjónustustig þessara mikilvægu almenningssamgangna.